Er Bubbi að selja sig eina ferðina enn??

Er ekki eitthvað loðið við að allt verði bara ókeypis á laugardaginn,tónleikar,húsdýragarður,sund og fleira fyrir foreldra og börn ? (af hverju ekki að hafa þetta á Sunnudeginum? ). Er ekki bara verið að reyna að eyðileggja mótmælin ? Við meigum ekki láta það gerast ! Hver stendur á bak við tónleikana? Er það eingöngu Bubbi ?  Er hann orðin svona ráðandi í þjóðfélaginu?  Var hann ekki arfavitlaus í sjónvarpinu um daginn og á leið að tapa öllu sínu? Kippti einhver í spotta?  Að hann skuli voga sér að reyna að eyðileggja mótmælin á næstkomandi laugardag sýnir hvað hann er kominn langt frá sínum uppruna.....


Börnin mín eru föst í Kaupþingbanka!

Ég hef verið með allt mitt í Kaupþing og börnin mín líka. Í dag skammast ég mín fyrir bankann minn og ætlaði að koma mér í burtu. En börnin mín fá ekki að losna vegna þess að bækurna þeirra eru bundar í 18 ár og Kauþing starfsmaður sagði við mig að það væri farið eftir LÖG OG REGLUM þannig að börnin mín sitja eftir þar....ekki séns að losa bækur þeirra.

...en ég veit hvenær mamma á afmæli!

Var úti að borða með 7 ára vinkonu minni. Hún á mjög erfitt með að muna hvenær hún á afmæli og ég spyr hana í hvert skipti sem við hittumst hvort hún sé búin að læra afmælisdaginn sinn. Hún svarar mér neitandi en segist muna hvenær mamma hennar eigi afmæli. " Mamma mín á afmæli 17. apríl í ágúst ". (mamma hennar á afmæli í nóv.) Ekkert smá funny!

Er með brilliant hugmynd!!

Árni ætti að flytja til Færeyja og taka Davíð og ríkisstjórnina með.

Hefur Sigurður Kári ekkert að gera?

Sigurður Kári berst enn við að fá vín í búðirnar.Er ekkert annað þarfara að gera á hinu háa alþingi? Er þjóðin ekki búin að vera á nógu miklu fylleríi og komin tími á meðferð? Held að hann ætti að vinna að einhverju mikilvægara í þágu þjóðarinnar. Hann mætti hætta mín vegna og spara okkur þann pening sem í hann fer ef hann getur ekki áttað sig á hvað er brýnna en bjór og léttvín í búðum.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband